laugardagur, 31. maí 2008

R.I.P.

Þessi síða er alveg dauð.

laugardagur, 9. febrúar 2008

Útþrá

Hver vill koma með mér aftur til Tælands? Já eða til Nýja Sjálands, eða kannski Kína, Balí, Indlands, Paraguay. Eða bara eitthvert?
Bjóðið ykkur fram að koma með mér í ferðalag, þarf að fara að komast í ferðalag!

föstudagur, 7. desember 2007

Partý!!!

Hæhæ,

það verður áramótapartý hjá mér á gamlárskvöld. Álagranda 12, íbúð 302. Fólk er velkomið hvenær sem er upp úr 22.00. Væri gaman að sjá sem flesta.

kveðja
Rúna

mánudagur, 22. október 2007

lokað fyrir bloggsíður á spítalanum?

hæ,

er það bara ég eða er allt í einu búið að loka fyrir bloggsíður á spítalanum. Að minnsta kosti kemst ég ekki lengur inn á þessa síðu á spítalanum. algert bögg.

föstudagur, 12. október 2007

Oktoberfest FUL

Ætlar einhver að kíkja á oktoberfest FUL á Grand Rokk í kvöld??

mánudagur, 24. september 2007

Borgarblús!

Já já, það verður höfuðborgin um helgina. Fyndið að þetta sé orðið eitthvert ,,thing" að mæta í borgina sem var áður mitt annað heimili. :)

sunnudagur, 23. september 2007

Saumaklúbbur

Vildi bara minna allar stelpur í bekknum á saumó á miðvikudaginn, nánari upplýsingar í meili sem þið ættuð að hafa fengið.

miðvikudagur, 19. september 2007

Sláandi



Hafði ekki hugmynd um þetta. Ég sem var að kaupa mér carton af London Docks í Duty Free.

miðvikudagur, 5. september 2007

NVH2 kl. 06:31

Kannski er það ég, en medicine hefur misst ljómann?

miðvikudagur, 29. ágúst 2007

Mis tilraun held ég

Held að þetta hópblogg sé kannski bara að missa marks. Það er kannski ekki alveg grunvöllur fyrir þessu. Þið vitið sem hafa skráð ykkur inn að þið getið öll sett inn færslur ef þið viljið?? Kannski þið hafið bara alveg jafnlítið að segja eins og andlausa ég.


Er annars bara föst allar nætur yfir heimsmeistaramóti í frjálsum íþróttum sem er í gangi í Japan um þessar mundir. Horfi til 4 að morgni og get ekki hætt, lovit, lovit, lovit!! Var alla vega að skoða heimsmetin og konan sem á heimsmet í 800 m hlaupi kvenna heitir Jarmila Kratochvilova og er frá Tékklandi en hennar met var sett árið 1983 og hefur ekki verið slegið enn. Læt hérna fylgja mynd af kvensunni, það er svo ykkar að dæma hvað ykkur finnst, mér finnst amk eitthvað pínu skrítið við þetta. Það er líka magnað að horfa á vídeó af henni að hlaupa, ótrúlegt hreint bara.


föstudagur, 10. ágúst 2007

Dick in a box - Hahahahaha

Veit ekki hvort þið eruð búin að sjá þetta, ógeð fyndið. Þetta er líklega það besta sem Baraí Vatnaskógi hefur gert til þessa, slær SexyBack alveg út af topplistanum.

þriðjudagur, 31. júlí 2007

Verslunarmannahelgin

Halló halló. Er að forvitnast hvað fólk ætlar að gera um verslunarmannahelgina sem er að skella á. Partý partý eða?? Sjálf held ég að ég skelli mér bara í sveitina mína.

föstudagur, 20. júlí 2007

Party-on í Mývatnssveitinni!!

Vona að veðurguðirnir verði ykkur góðir sem ætlið að skella ykkur norður í grillið hjá Sólveigu. Dansið nú rassinn úr buxunum í sveitinni, og ekkert cow-tipping! Held að beljurnar kunni ekki að meta að vera velt óforvarandis á hliðina þegar þær eru að dotta standandi.


Annars var ég þarna í nágrenninu um daginn og fékk ljómandi gott veður. Mæli með nátturuböðunum við Mývatn, ku vera góður þynnkubani.....læt hérna fylgja eina mynd af pleisinu fyrir þá sem ekki hafa komið þangað, útsýnið er brilljant.


Góða skemmtun :)

fimmtudagur, 19. júlí 2007

Prufa

Flott mynd þarna til hægri... væri alveg til í að vera þarna núna en ekki að skrifa dagnótur...
Annars bara að prófa hvort þetta virki.

miðvikudagur, 18. júlí 2007

Doc Grad Gang 2007 opnar bloggsíðu

Halló Halló, þá er síðan komin á laggirnar. Á eftir að fínpússa eitt og annað og gera einhverjar breytingar kannski en annars verður þetta svona í meginatriðum.

Sjáumst!